Með því að vafra um og nota þessa vefsíðu skilur þú og samþykkir skilmálana sem hér eru settir fram, sem vísað er til sem „skilmálar okkar“ og „skilmálar“. Vinsamlegast hafðu í huga að þú ert að samþykkja þessa þjónustuskilmála þegar þú ert að nýta síðuna okkar, með því að senda fyrirspurn eða panta vörur í gegnum þessa síðu samþykkir þú þessa skilmála og þá þjónustu sem við bjóðum.
Sala, tilboð og öll verð:
- Greiðsluleiðir:
– Hægt að greiða með millifærslu
– Hægt að greiða með skuldfærslu á reikning (krafa í heimabanka)
– Hægt að fá greiðsluhlekk og greiða með VISA / MasterCard
– Hægt að greiða með PEI eða VISA raðgreiðslur
- Allar sérpantaðar vörur (vörur sem ekki eru á lager) – þarf að greiða fyrirfram.
Varan fer í pöntun þegar viðskiptavinur hefur framvísað greiðsu með því að staðgreiða, borga kröfu í heimabanka eða senda kvittun fyrir greiðslu. Ef greiðsla fyrir pöntun berst ekki innan 2 virkra daga áskilur Nesbilar.is sér rétt til að hætta við pöntunina.
- Almennur afgreiðslutími / pöntunartími á vörum sem ekki eru til á lager eru 3-8 virkir dagar.
Það er hægt að panta með hraði þá er afgreiðslutími 2-4 virkir dagar. Pantanir á umfangsmiklum vörum – þungum og stórum, eins og til dæmis stuðarar, húdd, hjólabitar, hurðar, skothlerar, framstykki, felgur getur verið allt að 2-3 víkur.
Nesbilar.is tekur ekki ábyrgð á töfum sem orsakast af flutningsaðila, tollstjóra, vöruhúsi birgja eða öðrum töfum sem til eru komnar sé varan tímabundið eða alfarið ófáanleg frá birgja. Kaupandi á samt rétt á að fá pöntunina endurgreidda að fullu ef kaupandi er ekki búinn að fá hana afhenta í síðasta lagi 14 dögum eftir að tilgreindur afhendingar dagur er liðinn til dæmis þegar sendingin er stopp í tolli mjög lengi eða glötuð.
- Öll verð og tilboð eru miðast við gengi dagsins og geta tekið breytingum án fyrirvara. Öll verð eru með VSK og með sendingarkostnaði.
- Ekki er hægt að tryggja að varan sé til fyrr en tilboð er staðfest !
- Afhendingartími gæti breyst og er ekki öruggur, Nesbilar.is tekur ekki ábyrgð á seinkun.
Skilaréttur:
- Sérpöntunum, tilboðsvörum eða rafmagnsvörum er EKKI hægt að skila nema:
– Varan sem var afhent er önnur en sú sem var pönntuð !
– Varan sem kom til landsins er talsvert skemmd, gölluð og ónothæf !
– Varan passar EKKI í bilinn !
Viðskiptavinur er ábyrgur fyrir því að koma vöru til Nesbila við skil og/eða skipti innan við 14 daga frá afhendingu.
Skilavaran skal vera óskemmd, ónotuð, í lagi og í upprunalegum óskemmdum umbúðum.
__________________________________________________________________________
Endurgreiðslur:
Kaupandi á rétt á að fá pöntunina endurgreidda að fullu ef kaupandi er ekki búinn að fá hana afhenta í síðasta lagi 14 dögum eftir að tilgreindur afhendingar dagur er liðinn.
Endurgreiðsla á sér stað inann við 7 daga eftir staðfestingu um skil.
Almennur skilaréttur á vörum sem eru til á lager eru 14 dagar frá útgefnum reikning.
Sérpöntunarvörum, vörum sem ekki eru á lager þeas. vörum sem eru sérpantaðar – fæst ekki skilað eða skipt nema um annað sé samið (sjá hér fyrir ofan) – framvísi viðskiptavinur ekki fastanúmeri eða partanúmeri við pöntun á varahlutum sem leiðir af sér að röng vara sé pöntuð fæst þeirri vöru ekki skilað eða skipt.
- Rafmagnsvörum, útrunnum eða skemmdum hlutum og í skemmdum umbúðum er ekki hægt að skila.
- Mat á gallavörum getur verið framkvæmt af þriðja aðla. Varahlutir eða vörur sem eru gallaðir eða vitlausir er skipt út fyrir réttan hlut.
- Ekki er tekin ábyrgð á vinnutapi eða verkstæðis kostnaði sem fellur til vegna vörugalla osfv. þeas. ísettningarkostnaður eða kostnaður við að rífa úr eða setja varahluti í er ekki greitt af okkur né endurgreitt!
- Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Ábyrgð:
- Notaðir rafmagnstengdir varahlutir eru ekki í ábyrgð.
- Ný uppteknir, notaðir og nýir varahlutir eru í ábyrgð.
- Varahlutir verða að hafa verið settir í hjá viðurkenndum verkstæðum og sönnun um þjónustu hjá verkstæðum (ásamt hvað bíllinn er keyrður, dag sem hluturinn er settur í, upplýsingar um efni sem var notað í viðgerðinni) nema að báðir aðilar hafa ákveðið annað.
- Ef það eru einhverjar spurningar, vinsamlegast hafið samband áður en leitað er til þriðja aðila og ef vandamálið er leyst af þriðja aðila áður en Nesbilar eru gefnar upplýsingar um vandamálið þá getur Nesbilar ekki borið ábyrgð á endurgreiðslum eða pantað aðrar vörur.
Höfundaréttur, vörumerki, trúnaður.
Lógo, texti, myndir og allt efni á http://www.nesbilar.is eru eign Lendly – öll afritun og endurdreifing bönnuð og má ekki nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis. Seljandi veitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin og upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.